Leita í fréttum mbl.is

Bara peningar?

Það eru til margar ljótar sögur af því þegar "bara peningar" hætta að vera bara bara.  Ef þið vitið hvað ég meina.  En þessi saga er viðbjóður ef alsönn er.  Og ég hvet afkomendur þessa manns til að fara í einkamál við þá aðila sem tóku á móti skilaboðum sonarins en keyrðu þó jafnhart á þann gamla.  Þeir aðilar ættu náttúrulega að teljast heppnir ef það yrði sagan öll.  Ég á eiginlega bara ekki til orð... og ég hef nú heyrt því fleygt að þegar orðin þrýtur taka hnefarnir við.  Hver veit, það hlýtur einhverjum að ofbjóða þetta svo mikið að hann gerir eitthvað hvatvíst.  Eða hvað?  Mér finnst nú hljóma eins og einhverjir eigi þá hvatvísi skilið. Ég er ekki að hvetja til ofbeldis, ég er bara gáttaður eftir lestur síðasta sólarhrings.

Vá hvað við svertum okkar seinni tíma sögu í þessu magnaða góðæri.  Viðbjóður.

 


mbl.is Reynt að blekkja viðskiptavini bankanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Langbesta leiðin í svona máli er auðvitað að gera bara nöfn glæpamannanna opinber og láta þá sjálfa um að bera af sér sakirnar - ef þeir geta!

Þorsteinn Siglaugsson, 13.4.2010 kl. 12:02

2 identicon

Það eru margar sannar sögur um fólk sem var með ævisparnað á bók og var gabbað af þjónustufulltrúum bankanna til að kaupa verðbréf fyrir peninginn.  Almennur launþegi sem vinnur frá hendinni til munnsins á yfirleitt ekki mikið afgangs.

Þess vegna er það enn þá blóðugra að heyra af venjulegu fólki sem fékk kannski smá arf stóð með kannski 500 þúsund í höndunum og keypti verðbréf fyrir þetta eftir að þjónustufulltrúinn hafði hvatt þá eindregið til að fjárfesta í  " alveg öruggum peningamarkaðssjóði ".

Þetta er ljótt en satt.

Bryndís (IP-tala skráð) 13.4.2010 kl. 22:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haukur Sigurðsson
Haukur Sigurðsson
Einfaldar skodanir eins manns er fyrir utan stendur.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband