Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2010

Mídas og Björgas

Mídas breytti öllu í gull og þurfti svo að taka afleiðingunum af því, góðum og slæmum.

Björgas breytti öllu í skít og fór svo bara.

 Landi og þjóð hreinlega til sóma þessir menn.  Og svo eru þeir velkomnir áfram til frekari ævintýramennsku með íslenskri ríkisstjórn og þeirra "nýsköpun".  

Eruð þið að fatta það, að David Sullivan talar um að "byggja West Ham upp að nýju", eftir að klúbburinn var í höndum Forbes500FálkaorðuFöðursins?  Það er bara búið að lána út á miðasölu næstu 2ja ára og læti.  Stuðningsaðilar vinsamlegast beðnir um að borga 3 ár fram í tímann takk.  Og hvað svo... bara úps? 

Það er oft talað um að það þurfi að taka til eftir partýið og takast á við timburmennina að því loknu.  Mér þykir það örlítið verra þegar innbúið er í rúst og drepsótt útbreidd um hverfið.  Líka meðal þeirra sem ekki var boðið.

Ég held svei mér þá að ég taki bara í einn þessara snillinga ef ég rekst á hann.  Af hverju ekki?  Getur einhver gefið mér góða ástæðu fyrir því af hverju þessir meintu skíthælar eiga ekki bara skilið auðmýkt og sársauka og það af heljarinnar skammti?  Annars fær fólkið ekkert frið.  Það vita það allir þó það megi ekki tala um það, að stundum kemur fólk sér bara í þá stöðu að það á bara skilið prímítíva afgreiðslu, þ.e. að vera lamið.  Ég meina kommon...allir jafna sig af smá barsmíðum, þetta er bara svo að fólkinu í landinu líði betur.  Og enginn yfir fimmtugu verður laminn.  Það er ljótt!  Eldri en fimmtugir verða bara hýddir á beran bossann.

Og ef almenningur fær hvorki að lemja neinn né hýða... er þá í það minnsta hægt að óska eftir rannsókn og réttarhöldum frá ríkinu?  Plís... þetta er farið að verða ansi örkumla staða, vægast sagt.

 

Bara svona röfl, eigið góðan dag. 

 

 


mbl.is Sullivan: West Ham skuldar yfir 100 milljónir punda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kemur útskýringin málinu við?

Þetta er náttúrulega kjánaleg og skondin útskýring, en mér finnst hún ekki eiga að fylgja fréttinni frá lögreglunni.  Það sem þú segir við lögregluna við handtöku, finnst mér afar skrýtið að rati bara á síður dagblaðanna daginn eftir.  Ég geri mér alveg grein fyrir að það er sjálfsagt lítið skaðlegt í þessu máli, en mér finnst þetta svolítið prinsipp.  Það mætti taka mörg dæmi og snúa þessu á ýmsa vegu til að styðja mál mitt, en ég læt það ímyndunarafli þinu eftir.  Svo er frjálst að vera ósammála líka.

Góðar stundir 


mbl.is Var að flýta sér á næstu bensínstöð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Bíddu aðeins hérna...."

Eina dollu af Zyklon B á gólfið og skella í lás.  Uss.. hvað það myndi nú starta einhverju.  Það er nefnilega einmitt það sem vantar núna, meiri stríð og læti.  Allt of rólegt um þessar mundir. 

 Neinei ókei, ég er ekki að leggja til að kála forsætisráðherra Ísraels í alvöru, þetta var bara svona "dægrapæling".

En það fyndist ekki betri staður til þess...


mbl.is Netanyahu heimsækir Auschwitz
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þýðing óskast!

Getur einhver útskýrt fyrir mér hugtakið; "hugmyndafræðilegur agi"?  Ég legg minn skilning svosem í það en ég vil gjarnan sjá útskýringu á prenti frá sem flestum öðrum.
mbl.is Þörf á beinum aðgerðum í jafnréttismálum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Breytir litlu?

Hvers álit breytir þá miklu, ef manni leyfist að spyrja?  Hvernig getur það verið að álit þessa manns "breyti litlu".  Ég sé ekki betur en að vinstri grænir og samfylkingin "breyti litlu" til hins betra við stjórntauma landsins.  Ef að aumingjaskapurinn er alger í þessu máli, hvernig verður það þá í öðrum millilandasamningum.  Verða allir skulda-og lánafundir leiddir af forsætisráðherra sem talar enga útlensku, fjármálaráðherra sem lofar bara að borga allt sko, utanríkisráðherra sem finnst bara "Ísland í vondum málum" og viðskiptaráðherra sem vill bara fara aftur að kenna (skiljanlega).  Þá getum við þakkað fyrir að vera með bandóðan dómsdagsmálaráðherra sem getur bara hent úr landi öllum börnum þeirra þjóða sem ekki vilja gefa okkur allt eftir að fyrra bragði. 

Ég get bara ekki að því gert...þó að pabbi hafi varað mig við vinstri stjórn þá hélt ég náttúrulega eins og svo margir að þetta yrði ekki svona, en með þetta lið við taumana finnst mér eins og við séum að láta blinda spastíska barnið skutlast með kökuna vegna þess að bakarinn drakk sig fullan. Er engin önnur leið í stöðunni?

Skiljið sem viljið.

 


mbl.is Farsælast að fara fyrir dóm
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Haukur Sigurðsson
Haukur Sigurðsson
Einfaldar skodanir eins manns er fyrir utan stendur.
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband